Takk fyrir það

Að sjálfsögðu, við hverju var að búast.

Ég er talsmaður hærri skatta, frekar en að ráðast á velferðarkerfið.  Jón Gnarr borgarstjóri vor þorir, vill, getur og kann að koma heiðarlega fram. 

Mér finnst það órtrúlegt að heyra fólk kveinka sér undan hærri sköttum, mér prívat og persónulega finnst það ekkert gaman að þurfa að borga meira, en það veitir mér öryggiskennd að ég skuli vera í þeirri stöðu að geta greitt meira og þannig lagt mitt að mörkum að minna verði um fátækt og ekki eins harkalega skorið niður í velferðarkerfinu.

Gleymum því aldrei hverjir það voru sem komu okkur í þessa stöðu.... ALDREI!


mbl.is 7000 krónur á fjögurra manna fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Miðað við poolara þá hefuru merkilega rétt fyrir þér

Kári Örn (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 15:51

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Kári Örn, þakka þér.  Flestir verða óðir þegar minnst er á hærri skatta. 

En við Poollllararnir erum ekki af baki dottnir þrátt fyrir merkilega lélegt gengi núna í haust og það sem af er vetri.   Veit ekki hvar þetta endar eiginlega.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 30.11.2010 kl. 15:58

3 identicon

Ég held að við ættum heldur ekki að gleyma að hugsa til þess hvað hefði gerst hér í okt 2008 ef ríkisjóður hefði ekki verið skuldlaus.

Það er líka hægt að velta fyrir sér hvað hefði gerst öðruvísi ef aðrir væru við stjórn. 

Það má aldrei gleymast hve miklar klappstýrur samfylkingarmenn voru með bankageiranum og þeir komu í veg fyrir að einræðistilburðir á fjölmiðlamarkaði voru stöðvaðir. 

Nú er listamannaelíta komin til valda í borgini í boði  samfylkingarinnar. Hvað gerist? Niðurskurður á öllum sviðum þjónustu í borginni nema til menningarmála. Tilviljun? 

Ég hefði frekar viljað sjá minni framlög til borgarleikhússins en að skerða þjónustu sem börnin okkar fá í skólum og leikskólum. Ég hefði frekar viljað sjá fituna skorna af stjórnkerfi borgarinnar heldur en að láta almenningssamgöngur sitja á hakanum. 

Tryggvi (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 17:38

4 Smámynd: Ellert Júlíusson

Tryggvi, er það ekki einmitt hluti af inntaki þessarar fréttar að þeir ætli meðal annars að skera niður í stjórnkerfinu.

Og Ingibjörg, ég og vonandi enginn mun gleyma því hver kom okkur hingað og þeim aðilum er hollast að hitta mig ekki í bónus (svo sem ekki miklar líkur á því) :)

Ellert Júlíusson, 30.11.2010 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Friðriksdóttir
Ingibjörg Friðriksdóttir
Flottust seinnipartinn.

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Tónlist

Tónlist

Uppáhaldslögin mín


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 1689

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband