10.5.2009 | 21:52
Guð láti gott á vita
Þessi orð gætu jafnvel hvatt okkar fólk til dáða og aukið úrvinnsluhraðann um 30%. Jóhanna og Steingrímur tala um 100 daga áætlun, vonandi verður henni lokið fyrir Verslunarmannahelgi svo hægt verði að snúa sér að öðrum verkum.
Annars er ég himinlifandi og óska okkur öllum til hamingju með nýja ríkisstjórn.
Ég held að henni (ríkisstjórninni) muni takast vel til, þó vissulega eru erfiðir tímar framundan.
Ég vona að laun undir 300.000,- verði látin halda sér, en allt yfir það verði jafnað og engin laun verði yfir 800.þús til eina milljón.
Þeir sem verða á móti, verði látnir fjúka án starfslokasamninga í krafti neyðarlaga.
ÁFRAM ÍSLAND!
Gæti klárað næstu 100 daga á 72 dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist
Tónlist
Uppáhaldslögin mín
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hún komst á koppinn á endanum. Ég sakna hins vegar úrræða til að leiðrétta skuldastöðu almennings vegna húsnæðiskaupa. Tel það mikið réttlætismál og held að þjóðin verði aldrei sátt ef ekki kemur til afskrifta á hluta af þessum skuldum. Alltaf þarf ég að vera að rífa kjaft, líka þegar stjórnin sem ég kaus er komin til valda.
Rut Sumarliðadóttir, 11.5.2009 kl. 14:17
Haltu því endilega áfram. þ.e.a.s. rífa kjaft.
Bíddu róleg, þetta kemur allt með kalda eða heita vatninu. Það þurfa ekki allir afskriftir og ef þú kynnir þér málið þá er þegar farið að afskrifa fyrir þá sem leita sér hjálpar.
Ekki þarf ég afskrift, vil heldur að þeir sem þurfa fái hjálp og hana munu þeir fá, en það getur tekið tíma og þeir þurfa að leita eftir henni.
Fólk sem alltaf hefur verið í vanskilum verður það áfram, það er ekki við því að búast og á ekki að vera að fólk græði á þessu ástandil.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.5.2009 kl. 14:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.