3.1.2010 | 13:39
Palli ekki lengur einn í heiminum....
Ég er þeim hjartanlega sammála og tel að okkur sé ekki viðbjargandi fyrr en við viðurkennum vanmátt okkar til að stjórna frekjunni og gróðafíkninni.
Skora á alla þá sem vilja vera í liði þeirra sem axla ábyrgð. Það er engin munur á útibúi´Landsbankans á Hvolsvelli og Hull. Ríkisstjórn Íslands ber ábyrgðina og ríkisstjórnin erum við.
Ég kvíði því ekki að þurfa að minnka neyslu á óþarfa, flestir eiga nóg af fötum til næstu tuttugu ára.
Við, Íslendingar erum feikna flink, getum hannað upp úr gömlu og verið fín. Það eru mörg sóknarfæri í ýmiskonar framleiðslu sem útlendingar munu gleypa við. Það er að segja ef við opnum ekki landið fyrir mengandi glæpa fyrirtækjum.
Sýnið nú af ykkur dug, framsækni, kjark og heiðarleika. Takið þátt í að byggja upp Ísland með heiðarlegum vinnubrögðum.
Skora á forsetann að staðfesta Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist
Tónlist
Uppáhaldslögin mín
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nú þegar vinir Evrópusambandsins eru kominr með eigin síðu vona ég að þeir hætti að vinna skemdarverk á síðu Indefence.
Sigurður Þórðarson, 3.1.2010 kl. 15:52
Indefence hópurinn vill halda áfram í sama sukkinu. Skilja ekki ábyrgð sína frekar en alkinn sem ekki vill hætta að drekka, sér enga ástæðu til þess.
Hver er að vinna skemmdar verk á Indefens síðunni. Eru það mæður og feður, jafnvel ömmur og afar sem skrifa nöfn nýfæddra barna sinna og barnabarna á hana?
Á síðu stuðningsmanna undirsrifta er ekki einu sinni hægt að skrifa nöfn tveggja stuðningsmanna á sömu tölvu vegna IP nr.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 3.1.2010 kl. 16:13
Fyrir mér þá mátt þú alveg borga skuldir einkabanka, ekki vil ég gera það.
Lög ESB eru okkar meginn!
Bretar og Hollendingar hafa ekkert í höndunum en hafa þó íslenska ríkisstjórn í rassvasanum.
Hafsteinn (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 16:45
Einkabankarnir voru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar ef þú skyldir ekki vita það Hafsteinn. Annars værum við í góðum málum.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 4.1.2010 kl. 14:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.